Er hægt að vera slakari....Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

í bloggheimum, herre gúd. Hjá mér er allt príðilegt að frétta, gengur rosalega vel í skólanum fyrir utan eitt fag, en kennarinn í þeim áfanga er djöfullinn sjálfur endurfæddur...... Sem segir allt sem segja þarf um kennsluna í þeim áfanga...

Í fyrra sló ég mín met í þorrablótskomum, fór á þorrablótið á Hvammstanga og skundaði á ballið með Guddu á hin 2 í sveitinni. Í ár tók ég þetta skrefi lengra og fór á mat/skemmtiatriði/ball á 3 blót, og það í 3 mismunandi sýslum og geri aðrir betur..

Annars er ég farin að vera með spinning núna 3 í viku, sem er kannski bara eins gott þar sem nammiátið hefur aukist til muna.. Marie Ann fer svo alveg að fara að gjóta, já eða eiga :) hlakka mikið til. Verst að búa ekki á Hvammstanga, svo erfitt oft á tíðum að vera svona langt í burtu frá ættingjum og vinum...

Æji.... veit ekki hvað meira skal segja....
nema ég og Sigrún erum að plana...
múhahahaha, hvað við erum mikið að plana...
múhahahahahaha Wink

Góðar stundir kæru vinir
Sveinbjörg

Nýtt ár, ný fyrirheit, ný byrjun...Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Er það ekki alltaf svoleiðis, byrjar ekki allt upp á nýtt um hver áramót? Hversu frábært væri það ef að öll lán og skuldir myndu alltaf núllast um hver áramót og þú gætir bara byrjað upp á nýtt.. Freistandi en fjarstættSmile

Annars er ég aðallega að blogga fyrir Ingunni, nenni aldrei að blogga þessa dagana, er liggur við hætt að skoða blogg, aðalástæðan er hugsanlega facebook já og kannski örlítið námið. Á mínum bæ verða ekki strengd nein áramótaheit, er ekki vön að strengja nein sérstök áramótaheit.

Skólinn er byrjaður, námið strax komið á fullt, og einnig er ég búin að taka að mér að vera með spinning 2 í viku fyrir samnemendur mína og starfsfólk skólans. Þar er nú mestur ávinningurinn fyrir mig, því ekki nóg með það að ég reyni meira á mig heldur fæ ég líka borgað fyrir það, ekki slæmur díll þar.

Áramótin voru dásamleg, finnst svo yndislegt að Böðvarshólafólk og viðhengi skuli alltaf koma til mömmu um miðnættið, hvað er betra en að vera með fólki sem manni þykir vænt um og þá sérstaklega á svona stundum. Þessi áramót voru ennþá sérstakari því einhverra hluta vegna breyttist þessi fjölskyldusamkoma í hið fjölmennasta sing star partý, og já hjá mömmu..Laughing Ballið fannst mér frábært, kannski var það sökum mikillar ölvunar, ég veit það ekki. Og já ég fór í eftirpartý og var sko lengi, það gerist nú alls ekki oft.

Ýmislegt á næsta leyti svo sem Þorrablót, Bifró og Söngvarakeppnin. Hugsanlega þarf maður að velja á milli Þorrablótsins og Bifró...

En ljúfar stundir
Sveinbjörg

Kominn Desember, ljúfi Desember...Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Prófin búin, vil alls ekki ræða þau...
Missó í gangi, vil heldur ekki ræða það....
Pökkuðum Yaris inn í jólagjafapappír aðfararnótt þriðjudagsins....
bíllinn hans Árna

Árni Þór var að vonum mjög ánægður með þennan pakka, við skildum hann eftir á háskólatorginu.
Smakkaði í fyrsta skipti jólaglögg í gær, það mun ég eflaust ekki drekka oft, mjög spes..
Jólafrí eftir rétt rúma viku....
Og afmæli hjá M á laugardag, kellingin að verða 30, lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 22 ára Wink

Góðar stundir lömbin mín...
og hagiði ykkur..
Sveinbjörg

Já sæll....Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Jú góðan daginn. Ég biðst velvirðingar á bloggleysi, það hefur bara einfaldlega ekkert drifið á mína daga undanfarið, allt of mikið að gera út af þessari blessuðu viðskiptaáætlun og djammið hefur tekið sinn toll. En nú segi ég stopp, alla vega á djammið.. námið leyfir mér víst ekki að taka pásu.
Í dag er 1 og hálf vika í próf... sjæse bene...

Ég er að selja wc-pappír og eldhúsrúllur fyrir útskriftarfélagið sem ég er í. 48 rúllur af wc-pappír á 2.500 og 24 rúllur af eldhúspappír sömuleiðis á 2.500, endilega hafið samband :)

Fékk 10,5 í prófi í síðustu viku, var hæst, geri aðrir betur. Eða reyndar fékk ég 9,5 fyrir prófið og 1 heilan fyrir verkefni sem við gerðum í tímanum. Þannig að þessar 0,5 koma til hækkunar á síðasta prófi :)

Þurrt blogg ég veit...

Góðar stundir
Sveinbjörg

Góðverk...Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Á þessum síðustu og verstu tímum er vel við hæfi að hugsa vel til náungans og gera góðverk. Miðvikudaginn síðasta kom blóðbíllinn á Bifröst. Ég er dauðhrædd við nálar og hef hingað til reynt að koma mér undan hinum hefðbundnu flensusprautum. En á miðvikudaginn ákvað ég að taka á mínum stóra og láta athuga hvort ég mætti gefa blóð svo að ég gæti nú gefið næst þegar að þau yrðu á ferðinni. Ég fékk hana Beggu til að koma með í för til að hughreysta mig. Það fór nú ekki betur en svo að við biðum í 30 mínútur eftir að komast að því að tölvukerfið var bilað og ekki hægt að skrá niður upplýsingar um blóðgjafa. Svo þegar búið var að komast að vandanum þá þurftu þau að fara, ekkert sýni tekið úr mér takk fyrir.....

Þannig að eftir þetta skundaði ég út í Samkaup og keypti brjóstakrabbameinsslaufuna og lagði mitt af mörkum þar, enda er þetta hin fínasta næla:)

Efnahagsástandið er að fara með marga í þjóðfélaginu. Einn skólafélagi minn er búinn að tapa 3 milljónum á hlutabréfum, ekki gott útlit hjá honum. Mín kynslóð og kynslóðin á undan þekkjum ekki þessa kreppu sem allir eru að tala um því við höfum ekki upplifað hana. En maður er sífellt að gera sér betur og betur grein fyrir ástandinu og hversu alvarlegt þetta er orðið og er á leiðinni með að verða. Algengasti frasinn á Bifröst þessa dagana er "það er nefnilega kreppa sko". En þess þá heldur er akkúrat tíminn til að hugsa vel um náungann og ,eins og pabbi er sífellt að brýna fyrir mér, að ráðstafa hverri krónu eins vel og mögulegt er.

 
Fariði vel með ykkur elskurnar
Góðar stundir í kreppunni
Sveinbjörg

Töff auglýsingSveinbjörg Rut Pétursdóttir

Pimps and ho'sSveinbjörg Rut Pétursdóttir



Þetta var svo gaman, orð fá því ekki lýst...





Fleiri myndir á facebookinu....

Góðar stundir
Hlæjandi

Sveinbjörg

Jesús og gossSveinbjörg Rut Pétursdóttir

Góðan dag... Í dag er föstudagurinn 12 september og hér hangi ég í INEN, man ekki fyrir hvað það stendur, hjá honum Jóni Þrándi. Jesús hvað maðurinn er leiðinlegur, föstudagarnir eiga eftir að verða hreinasta helvíti í haust.

Mallorca var æði, svakalega gott að komast í burtu þar sem maður hefur ekki séns á að hlaupa í einhverja vinnu. Hjöddan náði að draga mig í heilar 6 rennibrautir í Western Park og telst það afrek út af fyrir sig. Að vísu var ég við það að fá taugaáfall á tímabili, sérstaklega þegar ég fór í bláu rennibrautina, jesús og goss. Blessunarlega slapp ég heil á húfi frá þvíBrosandi

Þessi er tekin örugglega síðasta daginn á Mallorca, náðum að brenna aðeinsHlæjandi

Annars er brjálæði að gera í skólanum, strax komið að kaflaprófi í reikningshaldi og bókhaldi eftir aðeins 2 vikur af skóla, það á að halda manni á tánum.

Starfsmannagleði á Café Síróp í kvöld, matur og fínerí. Réttir á morgun, varla að maður hafi tíma fyrir þetta Óákveðinn

Góðar stundir
Sveinbjörg

17. ágústSveinbjörg Rut Pétursdóttir

Í dag er minn minnsti og sætasti frændi, Pétur Örn, mánaðargamall.
Algjört rassgat Brosandi

Í dag eru 10 dagar í áætlaða Mallorcaferð.

Ég er að sjálfsögðu bara að fara til að finna hagstæðara verð á skólabókum, ég hef heyrt að þær séu á frábæru verði þarna úti.
Eníveis...

Góðar stundir
Sveinbjörg

Heimsmeistaramótið í Kubb...Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Já, heimsmeistaramótið í Kubb var haldið á Laugarbakka í gærkveldi hjá Huldu og Gunna. Þetta var æsispennandi mót og gríðarlega skemmtilegt. Litlu munaði að Núverandi meistarar, Bassatrommur, næðu ekki að halda titlinum sökum gríðarlegrar baráttu við Gærurnar. Þannig að þeir töpuðu næstum því... Það mun verða rímatsj, alveg klárt mál...
Eftir verðlaunaafhendingu, í verðlaun var sem sagt úlpan hans Gunna, skunduðum við á ball með hinni heimsfrægu hljómsveit Lexíu, þar var sko fjörið, jafnast vel, ef ekki gott betur, á við hann Geirmund Valtýsson og hans hljómsveit..Hlæjandi Lítill mjög svo fallegur fugl hvíslaði að mér smá upplýsingum um viðkomandi hljómsveit, veit ekki hvort ég má segja það eða ekki, Sæa mín?? En takk annars fyrir helgina þið stórskemmtilega fólk.. Hlæjandi
Svo á Helga mín afmæli í dag, innilega til hamingju með það hjartans rúsínan mín Koss
Hafiði það gott esskurnar



Góðar stundir
Sveinbjörg

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
  • Staður: Hvammstangi
  • Atvinna: Nemi

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan